Tilgangur félagsins er að vera vettvangur fræðslu og kynningar á sleðahundum og sleðahundasporti og efla iðkun sleðahundasports á Íslandi.
Félagsaðild
Félagsaðild að Sleðahundaklúbbi Íslands veitir þér aðgang að skemmtilegum félagsskap og þekkingu einstaklinga sem hafa mikinn áhuga og þekkingu á sleðahundum og sleðahundasportinu. Þú þarft ekki að eiga hund til að vera félagi í klúbbnum og allar hundategundir eru að sjálfsögðu velkomnar í öllu starfi klúbbsins.
Árgjaldið er kr. 3.000,-.
Til að gerast félagi þarftu aðeins að senda tölvupóst á netfangið info@sledahundar.is og greiða inngöngugjaldið með millifærslu inn á reikning klúbbsins með kennitölu 700910-1210 og reikningsnúmer 310-26-101210. Athugið að tilgreina einnig kennitölu klúbbfélaga í millifærsluskýringunni svo hægt sé að færa greiðsluna rétt til bókar.
Þegar inngöngugjaldið hefur verið greitt er aðild þín að klúbbnum staðfest. Við hlökkum til að hafa þig með okkur í félagsstarfinu!
Kennitala og reikningsnúmer
Kennitala klúbbsins er 700910‑1210. Bankareikningsnúmer fyrir greiðslu inngöngu- og félagsgjalds er 310‑26‑101210.
Lög og reglur
Lög Sleðahundaklúbbs Íslands lögð fram og samþykkt á aðalfundi 21.nóvember 2022
Keppnisreglur Sleðahundaklúbbs Íslands.
Sérákvæði um Bikejöring og Canicross keppnir.
Merki félagsins
Merki félagsins má nota á þrjá vegu.
Með svörtum lit á hvítum grunni:
Með bláum lit (Pantone 286 U) á hvítum grunni:
Með svörtum lit á bláum grunni (Pantone 286 U) með hundana fyllta með hvítum lit og rauða (Pantone 185) tungu í báðum hundunum:
Stjórn
Í stjórn félagsins eftir aðalfund í nóvember 2022 eru eftirtaldir einstaklingar
- María Björk Guðmundsdóttir, Formaður, sími 856-5165
- Bergþóra Kristjánsdóttir
- Arnar Geir Kortsson
- Davíð Magnússon, Gjaldkeri
- Olga Rannveig Bragadóttir, Ritari
- Aníta Einarsdóttir, Varamaður
- Anna Marín Kristjánsdóttir, Varamaður
Erindi er hægt að senda stjórninni á netfangið stjorn@sledahundar.is
Farið er með öll erindi sem trúnaðarmál.